breyting á deiliskipulagi
Naustareitur-Vesturhluti
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 653
13. október, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2017 var lögð fram umsókn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., mótt. 14. september 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Naustareits vegna lóða nr. 10-14 við Tryggvagötu og 14-18 við Vesturgötu. Í breytingunni felst leiðrétting og lagfæring á lóðarmörkum og heimild til þess að koma fyrir flóttaleið á Tryggvagötu 10, skv. uppdrætti, dags. 14. september 2017. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuða, dags. 14. september 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs