Byggingarlýsing uppfærð - svalahandriðum breytt
Friggjarbrunnur 32
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 627
31. mars, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. mars 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN036790 þannig að innra skipulagi í kjallara er breytt með því að koma fyrir salerni og aðstöðu til eldunar og koma fyrir gluggum á suðaustur hlið kjallara og minnka pall á lóð nr. 32 við Friggjarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Gjald kr. 11.000
Svar

Erindinu vísað í yfirstandandi vinnu við heildarendurskoðun deiliskipulags Úlfarsárdals.