Ósamþykkt íbúð - kjallara
Ránargata 34
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 533
27. mars, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 24. mars 2015. Sótt er um leyfi til að samþykkja ósamþykkta íbúð í kjallara, setja nýja glugga á vesturhlið, stækka núverandi glugga á suður- og vesturhlið og tengja geymsluskúr á lóð við rafmagn, sbr. fyrirspurn BN048207, sem fékk jákvæða umfjöllun, við hús á lóð nr. 34 við Ránargötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 7. október 2014, samþykki eigenda á nr. 36 og samþykki eigenda á nr. 34 fór með fyrirspurn. Meðfylgjandi einnig umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 27.1. 2015, bréf arkitekts dags. 17.3. 2015
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ránargötu 31, 32, 33a, 35, 36 og Vesturgötu 41 og 45.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100433 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025136