breyting á deiliskipulagi
Kambavað 1-3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2015 var lögð fram umsókn Aðalheiðar Atladóttur f.h. Kambavaðs 1 húsfélags dags. 1. júlí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna lóðar nr. 1-3 við Kambavað. Í breytingunni felst breyting á lóðarmörkum vegna breytingar á innkeyrslu og sorpskýli, stækkun lóðar til norðvesturs og setja hjólaskýli á lóð þar sem bílastæði voru áður, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. A2F arkitekta ehf. dags. 17. ágúst 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar dags. 11. júlí 2013. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt samþykki lóðarhafa að Kólguvaði 3.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hestavaði 1-3 og Kólguvaði 1, 3 og 5.