(fsp) breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 41
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 496
20. júní, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. júní 2014 var lögð fram fyrirspurn Random ark ehf. dags. 9. júní 2014 varðandi hækkun á risi hússins á lóðinni nr. 41 við Hverfisgötu, 80-100 cm. útbyggingar/yfirbyggðar svalir á fram- og bakhlið upp að gólfi 4. hæðar, hækkun á nýtingarhlutfalli og breytingu á bílastæðum, samkvæmt tillögu Random ark ehf. dags. 19. maí 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. júní 2014.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.18. júní 2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101069 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022362