(fsp) breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 41
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 713
25. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 9. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 41 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar frá núverandi ástandi, frá 1,09 í 2,33, en lækkað frá gildandi heimild sem er 2,88. Heimilt verður að hafa allt að fimm íbúðir í húsinu, tvær á hverri hæð (utan kjallara) og ein í risi. Heimilt verður að hafa verslun og þjónustu á fyrstu hæð og kjallara og svalir á norðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Stiku ehf. dags. 9. október 2018. Einnig er lagður fram tölvupóstur skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 22. janúar 2019 þar sem umsókn er dregin til baka.
Svar

Umsókn dregin till baka sbr. tölvupóst dags. 22. janúar 2019.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101069 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022362