(fsp) breyting á skilmálum deiliskipulags
Reynihlíð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 726
3. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn Hildar Einarsdóttur dags. 5. janúar 2019 ásamt greinargerð um breytingu á skilmálum deiliskipulags Íbúðabyggðar við Öskjuhlíð sem felst í felld verði úr skilmálum sérákvæði um sameiginlega aðkomulóð og leiksvæði við Reynihlíð. Einnig er lagt fram bréf íbúa við Reynihlíð dags. 9. desember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2019.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. maí 2019, samþykkt.