breyting á deiliskipulagi
Járnháls 2-4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 892
10. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 1. nóvember 2021 um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Járnháls. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir. Kvöð um umferð er sett á lóðina fyrir umferð að Krókhálsi 3 (neðri hæð) ásamt því að ný lóðarlína er dregin í miðju þeirrar kvaðar og bætt við umferð að Krókhálsi 1 (neðri hæð). Byggingarreitir eru stækkaðir og nýtingarhlutfall hækkað ásamt því að kvaðir sem eru á mæliblaði fyrir Járnháls 2-4 eru færðar inn á deiliskipulagsuppdrátt og ný aðkoma er gerð að lóð nr. 4, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 12. október 2021. Tillagan var auglýst frá 27. september 2022 til og með 8. nóvember 2022. Eftirtaldir sendur athugasemdir/ábendingar: Veitur ohf. dags. 26. október 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111038 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013377