Einbýlishús
Þingvað 19
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 462
4. október, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. september 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júlí 2013. Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, neðri hæð er byggð úr forsteyptum einingum og efri hæð úr timbri á lóð nr. 19 við Þingvað. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2013.
Jafnframt er óskað eftir að áður samþykkt erindi BN040298 verði fellt úr gildi. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. júlí 2013.
Stærð: 1. hæð bílgeymsla 36,5 ferm., íbúð 180,3 ferm., skyggni, 30,4 ferm(B-rými), 2. hæð íbúð 54,2 ferm. Samtals: 271 ferm., 936,2 rúmm. B-rými 30,4 ferm, xx rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2013

110 Reykjavík
Landnúmer: 198726 → skrá.is
Hnitnúmer: 10003470