Bílgeymsla
Básendi 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 759
24. janúar, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. janúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta bílageymslu, mhl.02, sem verður í eigu íbúðar 0201 í íbúðarhúsi nr. 12 við Básenda.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2019. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2019.
Stærðir: 35,0 ferm., 110,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Tunguvegi 11, 13 og 15, Básenda 10 og 14 og Garðsenda 12.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108387 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006903