breyting á deiliskipulagi
Frostafold 33
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis 4. og 5. áfanga vegna lóðarinnar nr. 33 við Frostafold. Í breytingunni felst að skilgreindir eru tveir byggingarreitir. Innan breytts byggingarreits núverandi húss má auka byggingarmagn. Í suðausturhorni lóðar er aðskilinn byggingarreitur afmarkaður fyrir yfirbyggða sorp- og hjólageymslu. fyrirkomulag bílastæða og aðkoma að lóð er einnig breytt, samkvæmt uppdr. VSÓ rágjafar dags. 9. apríl 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. maí 2021 til og með 23. júní 2021. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 22. júní 2021.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

112 Reykjavík
Landnúmer: 110103 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010800