Breytingar 1. og 2. hæð
Brautarholt 6
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 874
23. júní, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti, innrétta 6 íbúðir á 2. hæð, innrétta geymslur í austurhluta 1. hæðar, breyta gluggum á báðum hliðum, gera svalir á götuhlið og gera flatt þak á bakhús og gera þar svalir og aðkomu fyrir íbúðir á 2. hæð húss á lóð nr. 6 við Brautarholt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og minnisblað um brunahönnun dags. 11. apríl 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103022 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007691