Stækka hús
Garðsendi 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til suðurs og klæða efstu hæð með málmklæðningu í húsi á lóð nr. 3 við Garðsenda. Erindi var grenndarkynnt frá 24. ágúst 2018 til og með 21. september 2018. Engar athugasemdir bárust.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. júlí 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2018.
Stækkun: 72,3 ferm., 354,3 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108422 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010221