breyting á deiliskipulagi
Laufásvegur 68
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 332
6. janúar, 2011
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 17. desember 2010 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. desember 2010 þar sem sótt er um samþykkt á áður gerðum breytingum, m. a. er fyllt upp í útigeymslu (0002), sjá erindi BN035330, bætt við gönguhurð í bílskúr, gönguhlið sett í garðvegg og setlaug er færð inn á pall og hæðarlegu hans breytt við einbýlishúsið á lóð nr. 68 við Laufásveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 4. janúar 2011.
Gjald kr. 7.700
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Umsóknin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102722 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016572