(fsp) bygging bílskúrs/einingahúss og nýta undir atvinnurekstur
Stórholt 17
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 389
30. mars, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. desember 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr (mhl.03)í austurhorni lóðar fjölbýlishúss á lóð nr. 17 við Stórholt. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 5. janúar 2012 og samþykki meðlóðarhafa ódags. Erindi var grenndarkynnt frá 29. febrúar til og með 28. mars 2012. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 35 ferm., 99,8 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 7.984
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103282 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021145