Fjölnota Íþróttahús ÍR
Skógarsel 12
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 714
1. febrúar, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjölnota íþróttahús, með burðarvirki úr stáli, steyptum spyrnuveggjum og göflum og klætt að utan með sléttum steinullarsamlokueiningum, á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur á lóð nr. 12 við Skógarsel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærð: 4.464,8 ferm., 57.411,7 rúmm. Erindi fylgir minnisblað Eflu dagsett 7. desember 2018 með útreikningum á orkuramma og brunahönnunarskýrsla Eflu dagsett 11. desember 2018 og hljóðvistargreinagerð Eflu dagsett 11. desember 2018. Uppfærð brunahönnunarskýrsla frá Eflu dagsett 8. janúar 2019. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

109 Reykjavík
Landnúmer: 112546 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017649