Hækkun húss
Baldursgata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 713
25. janúar, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Rúnars Inga Guðjónssonar dags. 17. desember 2018 varðandi hækkun hússins á lóð nr. 3 við Baldursgötu um eina hæð, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar RÚM dags. 18. desember 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.
Svar

Ekki er gerð athugasemd við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102160 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007537