Hækkun húss
Baldursgata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 744
20. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 2019 þar sem sótt er um leyfi til að hækka mhl. 01 og mhl. 02 um eina hæð og stækka íbúðir sem fyrir eru á lóð nr. 3 við Baldursgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 16. ágúst 2019 til og með 13. september 2019. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 11. febrúar 2019, samþykki meðlóðarhafa og lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019. Stækkun mhl. 01: 54,7 ferm., 130,2 rúmm. Stækkun mhl. 02: 39,4 ferm., 90,5 rúmm. Samtals stækkun: 94,1 ferm., 220,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102160 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007537