Byggja 2.hæð ofan á hús, endurnýja anddyri og utanliggjandi stigahús
Kleppsvegur 104
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 681
18. maí, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná hús, endurnýja anddyri, byggja utanáliggjandi stigahús og fjarlægja klæðningu og múra að utan hús á lóð nr. 104 við Kleppsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.
Stækkun: 136,9 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki er gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.