Ofanábygging - viðbygging- fjölgun íbúða
Dunhagi 18-20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 661
8. desember, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja inndregna 4. hæð, byggja viðbyggingu við fyrstu hæð og kjallara, minnka og fjölga íbúðum úr 8 í 20, koma fyrir lyftu utan á húsinu og sorpgerði fyrir verslunarrými innan í rými 0106 á lóð nr. 18 - 20 við Dunhaga.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2017.
Útskrift úr gerðabók fundar umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. nóvember 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017, (13. nóvember 2017). Erindið var grenndarkynnt frá 22. ágúst 2017 til og með 3. október 2017 fyrir hagsmunaaðilum að Dunhaga 19, 21,23. Fálkagötu 29, Arnargötu 14. Tómasarhagi 28, 32, 34, 36,38, 40, 42,44, 46. Hjarðarhaga 27, 29, 31 og 33. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ásta Logadóttir, dags. 24. ágúst 2017 og 3. október 2017, Hildur Þórisdóttir, dags. 10. september 2017, Eyþór Mar Halldórsson, dags. 11. september 2017, Ásdís Schram, dags. 18. sept. 2017, Sólveig K. Jónsdóttir f.h. eigendur og íbúa að Hjarðarhaga 27, dags. 27. september 2017, Áslaug Árnadóttir hdl. f.h. hagsmunaaðila, dags. 2. október 2017 og Einar Ólafsson, dags. 3. október 2017. Stækkun viðbyggingu kjallara, 1. hæð og 4 hæð : 903,0 ferm., 2.459,0 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.