Svalir 2. og 3. hæð
Ljósvallagata 20
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 438
12. apríl, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjarlægja núverandi svalir á annarri hæð og í framhaldi byggja svalir á annarri og þriðju hæð. Jafnframt er gerð grein fyrir núverandi innra fyrirkomulagi íbúða 0201 og 0301 í húsinu á lóðinni nr. 20 við Ljósvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda í húsi dags. 06.03.2012 fylgir erindi. Samþykki eins meðeiganda (tölvubréf frá BNA) dags. 21.06.2012 fylgir erindi. Samþykki nágranna í húsum nr. 18 og 22 við Ljósvallagötu dags. 07.05.2012 fylgir erindi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. júní 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 28. júní 2012. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101289 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019170