Svalir 2. og 3. hæð
Ljósvallagata 20
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 433
1. mars, 2013
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjarlægja núverandi svalir á annarri hæð og í framhaldi byggja svalir á annarri og þriðju hæð.
Jafnframt er gerð grein fyrir núverandi innra fyrirkomulagi íbúða 0201 og 0301 í húsinu á lóðinni nr. 20 við Ljósvallagötu.
Samþykki meðeigenda í húsi dags. 06.03.2012 fylgir erindi. Samþykki eins meðeiganda (tölvubréf frá BNA) dags. 21.06.2012 fylgir erindi. Samþykki nágranna í húsum nr. 18 og 22 við Ljósvallagötu dags. 07.05.2012 fylgir erindi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. júní 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 28. júní 2012. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ljósvallagötu 18 og 22.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101289 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019170