(fsp) bílgeymsla, íbúð og geymslur
Kambsvegur 8
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 437
4. apríl, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa svalir, byggja viðbyggingu að suður- og vesturhlið og nýta þak hinnar nýju viðbyggingar sem svalir íbúðar annarrar hæðar í húsinu á lóðinni nr. 8 við Kambsveg. Einnig er lagt fram tölvubréf Selmu Guðmundsdóttur dags. 13. mars 2013 þar sem ekki er gerð athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd. Erindi var grenndarkynnt frá 25. febrúar til og með 25. mars 2013. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 fylgir erindinu. Umsögn skipulagsstjóra (v. fyrirspurnar) dags. 7. júní 2012. fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Stærð: Stækkun, viðbygging 40,6 ferm. og 112,5 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 9.563
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104200 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024810