Hótel fl.4 - veitingastaður fl.3
Vegamótastígur 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Reir ehf. dags. 15. maí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5 vegna lóðanna nr. 7 og 9 við Vegamótastíg. Í breytingunni felst m.a. í að hætt er við að endurreisa gamla steinbæinn á þaki nýbyggingar og hætt er við að færa gamla húsið á Vegamótastíg 9 upp á þak o.fl., samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. 29. júní 2015. Tillagan var auglýst frá 20. júlí til og með 17. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Rut Agnarsdóttir f.h. eigenda að Grettisgötu 3, 3a og 5, Arna Kristín Gísladóttir, dags. 31. ágúst 2015 og Gísli Petersen, dags. 16. september 2015. Einnig er lagt fram bréf Gísla Petersen, Helgu Björnssonar og Rutar Agnarsdóttur dags. 15. september 2015 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Lagt er fram að nýju athugasemdarbréf íbúa að Grettisgötu 3, 3a og 5 þar sem farið er fram á lengri framlenginu.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdafrest til 24. september 2015.