breyting á deiliskipulagi
Klapparstígur 19
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 715
8. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís arkitekta ehf. f.h. Ottó ehf. , mótt. 27. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 19 við Klapparstíg og nr. 1 við Veghúsastíg. Í breytingunni felst að skilgreindir eru tveir nýjir byggingarreitir á lóð ásamt byggingarreitur fyrir smáhýsi. Innan byggingarreits fyrir smáhýsi er heimilt að reisa palla og smáhýsi allt að 2.2 metrum að hæð. Einnig er gert er ráð fyrir 6 íbúðum á lóð, en ekki er gert ráð fyrir bílastæðum á lóð. Jafnframt verða byggingar á lóð nr. 1 við Veghúsastíg fjarlægðar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkís arkitekta ehf. , dags. 23. maí 2016. Einnig er lögð fram prófunarskýrsla Mannvits vegna cobraborunar, dags. 9. júní 2016, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkurborgar dags. 22. janúar 2016, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkurborgar vegna forleifa á lóðinni dags. 22. janúar 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands 11. febrúar 2016. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 1. febrúar 2018. Tillagan var auglýst frá 1. október 2018 til og með 12. nóvember 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Klapparstígur 17, húsfélag ásamt eigendum að Klapparstíg 13, 13A og 16 og Veghúsastíg 1A dags. 12. nóvember 2018. Einnig eru lagðir fram sjö tölvupóstar dags. 12. nóvember 2018 þar sem ekki er gerð athugasemd við tillögu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. nóvember 2018 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101047 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025789