Hækkun á risi
Víðimelur 62
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 460
20. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 20. ágúst 2013 þar sem sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja tvo kvisti og svalir á fjölbýlishús á lóð nr. 62 við Víðimel. Erindi var grenndarkynnt frá 28. ágúst til og með 25. september 2013 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst dags. 3. september 2013 er erindið nú lagt fram að nýju.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð, og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júní 2013, einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2013, útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags 19. júlí 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2013. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar

Leiðrétt bókun frá fundi 13. september 2013. Rétt bókun er:
Samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106000 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014584