Bráðabirgðakennslustofa
Fornhagi 1
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 861
18. mars, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2022 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir Hagaskóla að Fornhaga 1. Í tillögunni felst að gerðir eru byggingarreitir fyrir uppsetningu tímabundna færanlegra eininga fyrir kennslu og starfsmannahald á lóð, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 18. mars 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.3 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021

107 Reykjavík
Landnúmer: 106378 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012215