svalir, breyting úti
Bergstaðastræti 56
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 410
31. ágúst, 2012
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja svalir á suðvesturhlið 1., 2. og 3. hæðar ásamt samþykki fyrir áður gerðri stækkun íbúðar 2. hæðar um hluta af 3. hæð og fyrir stiga á milli 2. og 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 56 við Bergstaðastræti, samkvæmt uppdr. Studio Strik dags. 2. júní 2011 síðast breytt 24. ágúst 2012.
Samþykki meðeigenda ódags. og samþykki sumra eigenda Bergstaðastrætis 54 dags. í júlí 2005 fylgja erindinu. Samþykki eigenda dags. 23.8. 2012 fylgir.
Gjald kr. 5.700 + 5.700
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 54, Laufásvegi 49-51 og 53-55.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102208 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007073