breyting á deiliskipulagi
Njálsgötureitur 3
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 448
21. júní, 2013
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni forkynningu er lögð fram tillaga að nýju umhverfis- og skipulagssviðs dags. 17. maí 2013 að deiliskipulagi reits 1.190.3, Njálsgötureits. Skipulagssvæðið afmarkast af Njálsgötu, Barónsstíg, Bergþórugötu og Vitastíg. Tillagan var kynnt frá 5. júní til og með 19. júní 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn ábendingar og athugasemdir: Sigurður Kristinsson dags. 4. júní 2013 og Gunnar Sigurðsson dags. 18. júní 2013. Einnig er lagður fram tölvupóstur Svanhildar Thors dags. 18. júní 2013 þar sem óskað er eftir framlengingu á fresti til að senda ábendingar og athugasemdir til 25. júní 2013.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdafrest til 25. júní 2013.