Stækkun á stofu og fl.
Frostaskjól 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 402
6. júlí, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stofu til vesturs, breyta gluggum og koma fyrir arni í stofu einbýlishúss á lóð nr. 7 við Frostaskjól. Erindi var grenndarkynnt frá 28. júní til og með 26. júlí 2012 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst þann 3. júlí 2012 er erindi nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir afrit af kaupsamningi dags. 5. júní 2012, bréf hönnuðar og samþykki eigenda Granaskjóls 4 dags. 4. júní 2012 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. júní 2012.
Stækkun 8,3 ferm., 25 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 2.125
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 105870 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010811