breyting á deiliskipulagi
Njálsgata 56
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 707
30. nóvember, 2018
Frestað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. október 2018 var lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 6. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.3, vegna lóðarinnar nr. 56 við Njálsgötu. Í breytingunni felst að hækka og stækka núverandi byggingu og setja kvisti á þak, breyta byggingarreit til suðurs og byggja þar nýja viðbyggingu á einni hæð með kjallara og svölum á þaki byggingarinnar, rífa núverandi bílgeymslu og byggja nýja bílgeymslu og færist sú bygging u.þ.b. 5,8 metra inná lóðina svo útbúa megi bílastæði á lóð, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 19. september 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Frestað. Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102441 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023424