breyting á deiliskipulagi
Njálsgata 56
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2018 var lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 6. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.3, vegna lóðarinnar nr. 56 við Njálsgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka og stækka núverandi byggingu og setja kvisti á þak, breyta byggingarreit til suðurs og byggja þar nýja viðbyggingu sem yrði kjallari og ein hæð með svölum á þaki byggingarinnar, rífa núverandi bílgeymslu og byggja nýja bílgeymslu og færist sú bygging u.þ.b. 5,8 metra inn á lóðina svo útbúa megi bílastæði á lóð, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 19. september 2018. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. ódags. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skrifstofu sviðsstjóra dags. 24. apríl 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Njálsgötu 54, 53- 57, 58 og 58B.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102441 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023424