Br. á BN033298 - Bílskúr breytt í geymslu.
Langagerði 48
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. september 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN033298 þannig að núverandi svalir eru fjarlægðar, komið verður fyrir svölum sem eru 160cm x 260 cm á þak og gluggum breytt á húsinu á lóð nr. 48 við Langagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 27. nóvember 2019 til og með 30. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. nóvember 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2018. Gjald kr. 11.000 + 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108551 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014968