Ledskilti
Fossaleynir 1
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 481
28. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Alark arkitekta ehf. dags. 17. febrúar 2014 varðandi nýjan byggingarreit fyrir ný íþróttamannvirki þ.e. fimleika- og handboltahús, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf. dags. 10. febrúar 2014. Erindinu var vísað til umsagnar íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi íþrótta- og tómstundasviðs um samninga vegna Egilshallar dags. 27. febrúar 2014 og afriti af bréfi Borgarráðs dags. 20. febrúar 2014.
Svar

Leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014., en rétt bókun er " Vísað til umsagnar Íþrótta - og tómstundasviðs."
Með vísan til umsagnar íþrótta- og tómstundasviðs dags. 27. febrúar 2014, eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

112 Reykjavík
Landnúmer: 190899 → skrá.is
Hnitnúmer: 10078425