(fsp) breyting á lóðarmörkum
Spítalastígur 4, 6, 4a og 6b
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 846
19. nóvember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2021 var lögð fram fyrirspurn Baldurs Ólafs Svavarssonar dags. 7. október 2021 ásamt bréfi dags. 4. október 2021 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.0, Bergstaðastrætisreits, vegna lóðanna nr. 4 og 6 við Spítalastíg sem felst í að sameina baklóðirnar tvær nr. 4B og 6B í eina lóð og stækka lóðina á kostnað nr. 4 og 6. Sameina byggingarreiti í einn reit og skipta væntanlegri nýbyggingu í fjórar lóðréttar einingar. Fella út innkeyrslu að nr. 4B í gegnum viðbyggingu nr. 4 við Spítalastíg og heimila að byggja í gatið sem þar hefði annars verið. Aðkoma að hinni sameinuðu lóð nr. 4B og 6B yrði þá ein þ.e. sú sem fyrirhuguð er við nr. 6, samkvæmt uppdr. Úti og inn arkitekta dags. 4. október 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. nóvember 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. nóvember 2021 samþykkt.