Hverfisgata 4-6 - Breyting inni - tímabundin opnun
Hverfisgata 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 631
12. maí, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 2. og 3. hæð og innrétta þar 10 ný gistiherbergi og opna tímabundið yfir í hótel á lóð nr. 8-10 í húsi á lóð nr. 4-6 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2017.
Bréf arkitekts ódagsett fylgir erindi og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 06.03.2017 ásamt samþykki meðeigenda sem áritað er á teikningar. Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 12. maí 2017.