Mánatún 1- Breytingar BN049895 - glerskáli 07.01
Sóltún 1 - mhl.04
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 559
23. október, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Þorkels Magnússonar, mótt. 24. september 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bílanaustsreits vegna lóðarinnar nr. 1 við Sóltún. Í breytingunni felst að byggingarmagn á lóð íbúðarhúsnæðis (syðri lóð) breytist þ.a. bílgeymsla neðanjarðar minnkar en annað rými neðanjarðar stækkar samsvarandi, samkvæmt tillögu Kanon arkitekta ehf. dags. 19. október 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing um eignarhald á byggingarrétti, dags. 28. janúar 2008 og bréf byggingarréttshafa þ.e. Mánatún hf., Dverghamra ehf. og Sóltún 1 ehf. , dags. 16. október 2015.
Svar

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.