breyting á deiliskipulagi
Vitastígur 11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 570
22. janúar, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. janúar 2016 var lögð fram umsókn Rauðagerðis ehf., mótt. 5. janúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.2 vegna lóðarinnar nr. 11 við Vitastíg. Í breytingunni felst að hækka mæni húss, lækka kjallaragólf og lækka lóð milli fram- og bakhúss ásamt byggingu þjónustuhúss á lóðarmörkum Vitastígs 11 og 13, samkvæmt uppdr. Zeppelin arkitekta ehf., dags. 15. desember 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 21. desember 2015 og umboð Alfreðs Haukssonar h.f. Ráðagerðis ehf., dags. 4. janúar 2016.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vitastíg 10, 10a, 12 og 13 og Laugavegi 62, 64 og 66-68.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynninguna samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014 áður grenndarkynning á sér stað.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101636 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014669