breyting á deiliskipulagi
Rafstöðvarvegur 25
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 713
25. janúar, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. dags. 21. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Íbúðarsvæði við Rafstöðvarveg vegna lóðarinnar nr. 25 við Rafstöðvarveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni lóðarinnar sem felst í að gera gera viðbyggingu við íbúðarhús auk gufubaðs með skiptiaðstöðu inn á lóðinni ásamt niðurrifi á núverandi bílgeymslu og endurbyggingu hennar innar á lóðinni, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 20. desember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Rafstöðvarvegi 21,23 og 27.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110960 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022032