Viðbygging - breytingar
Laugavegur 23
Síðast Synjað á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 629
28. apríl, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. febrúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, svalir við stigahús og lækka gólf kjallara Klapparstígs 31 og rífa kjallara eldri viðbyggingar, byggja viðbyggingu aftan við timburhús á Laugavegi 23, innrétta verslanir á jarðhæðum og skrifstofur og tvær íbúðir á efri hæðum húsa á sameinaðri lóð nr. 23 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. apríl 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júlí 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23.2. 2016. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. nóvember 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. nóvember 2016. Stækkun: 96,4 ferm., 362,1 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 815,7 ferm., 2.259,5 rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. C-rými: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 10.100
Svar

Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagfulltrúa dags. 28. apríl 2017.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101435 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017521