breyting á deiliskipulagi
Tunguvegur 19
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 601
16. september, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. ágúst 2016 var lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar, mótt. 17. ágúst 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar nr. 19 við Tunguveg. Í breytingunni felst að heimilað er að innrétta nýja íbúð (baka til) og kaffihús (meðfram götuhlið) á 1. hæð hússins auk gistirýmis til útleigu ferðamanna á 1. hæð í bílskúr ásamt hækkun á þaki hússins með kvisti, samkvæmt uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar ehf., dags. 10. ágúst 2016. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Sogavegi 135, 212 og 216, Skógargerði 1a, Tunguvegi 17, 19a og 20 og Garðsenda 21.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108639 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024463