breyting á deiliskipulagi
Grundarstígur 7
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 728
17. maí, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2019 var lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 22. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bergstaðastrætisreits, reitur 1.184.0 vegna lóðarinnar nr. 7 við Grundarstíg. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir Grundarstígur 7 og 7B, kvöð er á lóðinni nr. 7 um umferð, sem og heimild til lagnar fráveituheimæðar og annarra lagna, leyfilegt nýtingarhlutfall lóðanna tveggja er aukið, byggingarreitur bílskúrs á lóð 7B stækkar og heimilt er að fjarlægja bílskúr og reisa innan byggingarreitsins íbúðarhús, kjallara og hæð, allt að 120 fm., samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 16. maí 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101997 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010987