21-25 - Færanlegar kennslustofur
Réttarholtsvegur 21-25
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 728
17. maí, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp fjórar færanlegar kennslustofur og tengigang á lóð skólans nr. 21-25 við Réttarholtsveg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærðir: Kennslustofur, pr. hús (4 stk.): 62,7 ferm, 210,9 rúmm, Samtals stærð á húsum: 250,8 ferm., 843,6 rúmm. Tengigangur: 11,7 ferm., 38,6 rúmm. Samtals viðbót á lóð: 262,5 ferm., 882,2 rúmm. Erindi fylgir bréf Umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. apríl 219.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 40, 58, 60, 62, 80, 82, 84, 102, 104, 106 og 122 og Ásgarði 73-77, 95-111.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005085