21-25 - Færanlegar kennslustofur
Réttarholtsvegur 21-25
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að setja fjórar færanlegar kennslustofur sem verða tengdar saman tvær og tvær og verðar skráðar sem mhl. 13 og mhl. 14, við Réttarholtsskóla á lóð nr. 21- 25 við Réttarholtsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra .
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Réttarholtsvegi 27,29,31,33,35,37,39,41, og 43 og Ágarði 55,57,59,61,63,65,67,69 og 71.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10005085