(fsp) breyting á deiliskipulagi
Laugavegur 176
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 743
13. september, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Yrki arkitekta ehf. dags. 5. september 2019 varðandi nýtt deiliskipulag fyrir reit sem afmarkast af Laugavegi til norðurs, Bolholti til austurs, Skipholti til suðurs og Laugavegi 174 og Skipholti 31 til vesturs. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á lóðinni Laugavegur 176 vegna fyrirhugaðs hótels, en aðrar lóðir á skipulagsreitnum verða skilgreindar sem lóðir án heimilda samkvæmt uppdráttum Yrki arkitekta ehf. dags. 4. september 2019. Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 21. september 2017, húsakönnun dags. 2017 og minnisblað VSÓ Ráðgjafar um samgöngumál dags. 2. júlí 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103435 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018273