breyting á deiliskipulagi
Frakkastígsreitur 1.172.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 713
25. janúar, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Zeppelin ehf. dags. 13. nóvember 2018 ásamt greinargerð dags. 9. nóvember 2018 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.1, Frakkastígsreits, vegna lóðanna nr. 33, 33A, 33B, 35 og 37 við Laugaveg og 4 við Vatnsstíg sem felst í að hús að Laugavegi 33 og 33B verði færð í átt að upprunalegu útliti, hús að Laugavegi 35 verði hækkað um eina hæð og timburhluti sama húss verði endurbyggður og hækkaður um eina hæð, hús að Laugavegi 33A og Vatnsstígi 4 verði rifin og ný byggð í þeirra stað, uppbyggingu að Laugavegi 37 o.fl., samkvæmt tillögu Zeppelin ehf. dags. 12. nóvember 2018. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdr. dags. 12. nóvember 2018. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 29. nóvember 2018 og tölvupóstur Orra Árnasonar arkitekts ásamt greinargerð Húsverndarstofnunar Íslands um ástand húss ódags.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.