Svalir - annarri, þriðju og rishæð
Ásvallagata 25
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 741
30. ágúst, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2., 3. og rishæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 25 við Ásvallagötu.
Erindi fylgir ódagsett samþykki allra húseigenda áritað á uppdrátt dags. 11. júlí 2019, undirritað umboð eiganda íbúðar 0301 dags. 11. júní 2019 og umboð eiganda íbúðar 0001, dags. 11. júní 2019 auk skýrslu burðarþolshönnuðar dags. 14. júlí 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 23 og 27 og Brávallgötu 30 og 40.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101264 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007341