breyting á deiliskipulagi
Ísleifsgata 2-34
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 427
18. janúar, 2013
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Búseta dags. 16. október 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsáss vegna lóðanna nr. 2-34 við Ísleifsgötu. Í breytingunni felst að bætt er við nýrri raðhúsagerð, íbúðum fjölgað úr 16 í 18 og skilmálum fyrir gestabílastæði er breytt samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 10. apríl 2007 síðast breytt 10. október 2012. Tillagan var í auglýsingu frá 26. nóvember 2012 til og með 10. janúar 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Kristín S. Sigurðardóttir og Hjörtur Lúðvíksson dags. 8. janúar 2013, Hörður J. Guðmundsdóttir og Lena Rut Kristjánsdóttir dags. 9. janúar 2013, Gunnar Ás Vilhjálmsson dags. 9. janúar 2013, Ingibjörg Hreiðarsdóttir og Guðbjörn Guðmundsson dags. 10. janúar, Róbert V. Jónasson og Heiðrún Ó. Níelsdóttir dags. 10. janúar 2013, Fjóla Agnarsdóttir og Sigurður Ólafsson dags. 10. janúar 2013 og Baldvin Svavarsson og Harpa Sigmarsdóttir dags. 10. janúar 2013,
Svar

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214833 → skrá.is
Hnitnúmer: 10119563