breyting á deiliskipulagi
Sólheimar 27
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 547
17. júlí, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Karls Magnúsar Karlssonar mótt. 4. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heimahverfis vegna lóðarinnar nr. 27 við Sólheima. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir sorpskýli á lóðinni austan við núverandi fjölbýlishús, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 29. maí 2015. Kynning var frá 11. júní til 9. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105282 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019373