staðsetning ökutækjaleigu
Skeifan 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 380
30. janúar, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Höldurs ehf. dags. 28. nóvember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skeifu/Fen vegna lóðarinnar nr. 9 við Skeifuna. Í breytingunni felst stækkun húss fyrir nýja viðbyggingu, skv. uppdrætti Aðalsteins Júlíussonar dags. 24. nóvember 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. janúar 2012 til og með 23. janúar 2012. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

108 Reykjavík
Landnúmer: 105660 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016106